Skip to main content

Ristað brauð með fíkjum og geitaosti

Hráefni:

Fyrir 4

  • 4 sneiðar heilhveitibrauð
  • 150 g mjúkur geitaostur
  • 4 sneiðar hráskinka
  • 4 fíkjur
  • 1 grein rósmarín
  • 2 msk. hunang

 

Aðferð:

1. Ristið brauðsneiðar og smyrjið með geitaosti. Setjið skinkusneiðar ofan á. Skerið fíkjur í sneiðar og raðið ofan á skinkuna. Rífið nálarnar af rósmaríngreinunum og hakkið fínt. Dreifið yfir fíkjurnar. Dreypið síðan hunangi yfir.

Njótið!

Jógúrt með kíví og heimagerðu granóla

Hráefni:

Fyrir 2

  • 50 g möndlur
  • 50 g heslihnetur
  • 50 g haframjöl
  • 50 g sólblómafræ
  • 75 g rúsínur
  • 2 msk. hunang eða hlynsíróp
  • 2 kíví
  • 300 g jógúrt

 

Aðferð:

1.Hitið ofninn að 170°C.

2.Hakkið möndlur og heslihnetur gróft. Dreifið á bökunarplötu ásamt höfrum og sólblómafræjum. Bakið í miðjum ofni í um 25 mínútur þar til granólað er orðið gullinbrúnt og stökkt. Hrærið þegar tíminn er hálfnaður svo það bakist jafnt. Hellið yfir í skál. Bætið við rúsínum og hunangi eða hlynsírópi og blandið vel saman. Látið kólna í um eina klukkustund.

3.Afhýðið kíví og skerið í teninga. Setjið jógúrt, granóla og kíví lagskipt í tvö glös eða tvær skálar.

4.Hugmynd: Það eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að útbúa margar mismunandi útgáfur af granóla. Það er t.d. hægt að nota sesamfræ, kókosflögur (bætið við eftir 15 mín.), döðlusíróp og þurrkaðar fíkjur.

5.Geymsluráð: Heimagert granóla má geyma í lokuðum dalli eða krukku í um tvær vikur.

Ferskt salat

Hráefni:
250 hindber
-150 g fetaostur
-½ agúrka
-1 lítill rauðlaukur
-300 g blandað laufsalat
-150 g pekanhnetur
-2 msk. ólífuolía
-Salt og pipar

 

Aðferð:

1.Skerið gúrkuna og kljúfið hana. Skerið í þunnar sneiðar. Skerið laukinn í tvennt og síðan í þunnar sneiðar.

2.Myljið fetaostinn og hakkið hneturnar gróft. Blandið öllu saman, skvettið olíu yfir og kryddið með salti og pipar.

3.Dreifið salatinu jafnt á fjóra diska. Skerið hindberin í tvennt og dreifið yfir salatið.

Hugmynd: Salatið  bragðast einnig vel með appelsínusósu.

Njótið!

Crostini með bláberjum

Hráefni:
1 gróft snittubrauð
-200 g rjómaostur
-4 msk. hunang
-125 g bláber
-1 askja karsi (ef vill)
-Salt og pipar

 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn að 180°C.
  2. Skerið brauðið í sneiðar og raðið á bökunarplötu. Bakið í 5–10 mínútur. Snúið sneiðunum við þegar tíminn er hálfnaður. Látið kólna í 5 mínútur.
  3. Smyrjið ostinum á brauðsneiðarnar og kryddið með salti og pipar.
  4. Skerið helminginn af bláberjunum í tvennt og dreifið jafnt á sneiðarnar (hafið hin berin með á fatinu til að skreyta). Setjið svolítið hunang yfir og skreytið með karsa.

Biscoff bananabrauð

Hráefni:
– 2 þroskaðir bananar
– 2 egg
– 50 gr púðursykur
– 100 gr sykur
– 115 gr brætt smjör
– 1 tsk vanilludropar
– 1/2 tsk matarsódi
– 1/2 tsk lyftiduft
– 200 gr hveiti
– 1 tsk kanill
– 40 ml mjólk
– 3-4 msk Biscoff spread
– 4 Biscoff kex
Aðferð:
Forhitið ofn á 175C.
1. Stappað banana
2. Bætið tveimur eggjum saman við og hrærið
3. Hrærið sykrinum saman við
4. Bræðið smjör við lágan hita og hellið saman við blönduna ásamt vanilludropum
5. Bætið rest af þurrefnum: matarsóda, lyftiduft, hveiti og kanil
6. Hrærið vel saman og endið á að setja mjólkina saman við
7. Smyrjið brauðform og klæðið það með smjörðappír
8. Hellið helmingnum af deiginu í formið
9. Setið Biscoff smyrjuna jafnt yfir
10. Dreifið restinni af deiginu yfir
11. Myljið kexið ofan á
12. Bakið í 175• heitum ofni í 45-55 mínútur
13. Berið fram með Biscoff smyrju

Auðvelt og gott döðluspestó brauð

– Látið 2x mjúkar döðlur liggja í heitu vatni í 2-3 mín
– Blandið saman pestó og döðlum
– Ristið brauð og smyrjið með rjómaosti
– Bætið við döðlu-pestó mauki
– toppið með klettasalati, salti, chillíflögum og eggi
Sjá myndband

Taco skál

Hráefni:
– Hakk
– Fajitas krydd (Änglamark)
– Blandað salat
– Rauðlaukur
– Kirsuberjatómatar
– Jalapeno
– Avokadó
– Sítrónusafi
– Salt & pipar
– Taco sósa (Änglamark)
– Kóríander
– Ostur
Aðferð:
Forhitið ofn á 200C.
Berið smá ólívu olíu í skálina áður en þið setjið tortiluna í
Bakið í ofni í 5 – 7 mín eða þangað til tortillan er orðin brúnlituð
Steikið hakk með fajitas kryddinu frá Anglamark
Setjið avocado í blandara með dass af sítrónu, salt og pipar
Skerið grænmeti
Setjið síðan allt í skál