Skip to main content

Gjafakort

Rafræn gjafakort Kjörbúðarinnar eru tilvalin gjöf við öll tækifæri. Kortin virka líkt og debetkort nema að því leyti að þau eru handhafakort og eru því mjög þægileg í notkun. Hægt er að kaupa kort fyrir hvaða upphæð sem er, en þó að lágmarki 2.500 krónur.

Gjafakortin eru seld í öllum verslunum Kjörbúðarinnar. Ef um magnpöntun er að ræða þá er hægt að hafa samband við skrifstofu Samkaupa. Kortið sjálft er eign Kjörbúðarinnar.

Gjafakortið gildir til greiðslu á vörum og þjónustu hjá fyrirtækinu. Innistæðu er ekki hægt að leysa út með reiðufé.

Kortin gilda í tvö ár frá útgáfudegi. Hægt er að fá upplýsingar um stöðu korta og einnig hægt að fylla á gjafakort á afgreiðslukössum í verslunum Kjörbúðarinnar.

Nánari upplýsingar má fá í síma 421-5400.