Frá og með 5. maí 2026 breytist Samkaupa appið í Nettó appið. Nettó appið er hægt að nota í verslunum Nettó, Kjörbúða og Krambúða. Hér fyrir neðan eru svör við helstu spurningum sem þú gætir haft varðandi það að færa þig yfir í nýtt app.
Hvað þarf ég að gera til þess að fá Nettó appið?
Ef þú varst með Samkaupa appið í símanum þínum og með kveikt á sjálfvirkum uppfærslum þá uppfærist það sjálfkrafa í Nettó appið. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig inn í Nettó appið með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappinu.
Ef þú varst ekki með Samkaupa appið þá getur þú sótt Nettó appið á App Store fyrir iPhone eða Play Store fyrir Android.
Hvað er Nettó kortið?
Nettó kortið er framlenging á appinu og gerir þér kleift að auðkenna þig hratt og auðveldlega á kassanum þegar þú verslar.
Svona setur þú Nettó kortið í veskið í símanum þínum:
- Opnaðu Nettó appið
- Smelltu á hnappinn ‘Inneign’ neðst á skjáunum
- Smelltu á ‘Bæta í veskið’
- Smelltu svo á ‘Add’ og kortið er komið í veskið
Í hvaða verslunum get ég notað Nettó appið?
Þú getur notað Nettó appið í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni.
Hvernig virkja ég kaupfélagskjörin mín í Nettó appinu?
Ef þú ert skráður meðlimur í KSK, KB, KASK eða KÁ uppfærast kjörin þín sjálfkrafa í Nettó appinu, meðlimir fá 2% inneign í appið af vörum sem þeir versla í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni. Kjörin þín eru virk ef þú sérð merki kaupfélagsins birtast á Nettó kortinu í veskinu í símanum.
Hvernig safna ég inneign?
Ef þú ert skráður meðlimur í KSK, KB, KASK eða KÁ færðu 2% inneign í appið af vörum sem þú verslar í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni. Til að safna inneign auðkennir þú þig á kassa áður en þú greiðir.
Svona auðkennir þú þig á sjálfsafgreiðslukassa:
- Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
- Berðu strikamerkið á Nettó kortinu upp að skannanum á kassanum
- Þegar þú sérð nafnið þitt á skjánum á kassanum þá veistu að innskráning hefur heppnast. Nafnið þitt birtist annað hvort efst á skjánum eða fyrir ofan vörulistann, það fer eftir því hvernig sjálfsafgreiðslukassa þú ert á.
Svona auðkennir þú þig á beltakassa:
- Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
- Réttu starfsmanni á beltakassa símtækið og hann skannar kortið
- Bráðlega kemur skanni á posa þar sem viðskiptavinir geta auðkennt sig sjálfir
Hvernig borga ég með inneign?
Þú getur greitt með inneign þegar þú verslar í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni. Til að greiða með inneign auðkennir þú þig á kassa áður en þú greiðir.
Svona greiðir þú með inneign á sjálfsafgreiðslukassa:
- Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
- Berðu strikamerkið á Nettó kortinu upp að skannanum á kassanum
- Þegar þú sérð nafnið þitt á skjánum á kassanum þá veistu að innskráning hefur heppnast. Nafnið þitt birtist annað hvort efst á skjánum eða fyrir ofan vörulistann, það fer eftir því hvernig sjálfsafgreiðslukassa þú ert á.
- Þegar þú ætlar að greiða, veldu ‘Aðrir greiðslumátar’ og því næst ‘Nettó vildarkort’
- Sláðu inn hversu mikla inneign þú vilt nota til að greiða með inneign.
Svona greiðir þú með inneign á beltakassa:
- Opnaðu Nettó kortið í veskinu í símanum þínum
- Réttu starfsmanni á beltakassa símtækið og hann skannar kortið
- Láttu starfsmann vita hversu mikla inneign þú vilt nota til að greiða með
- Bráðlega kemur skanni á posa þar sem viðskiptavinir geta auðkennt sig sjálfir
Fyrnist inneignin mín?
Inneign fyrnist á tveimur árum frá því að þú vannst þér hana inn.
Hvar get ég séð hversu mikla inneign ég á?
Þú getur séð hversu mikla inneign þú átt á Nettó kortinu í veskinu í símanum þínum eða á aðalskjánum í Nettó appinu.
Hvar sé ég kvittanirnar mínar?
Til að sjá kvittanirnar þínar gerir þú eftirfarandi:
- Opnaður Nettó appið
- Smelltu á ‘Inneign’ í valmyndinni neðst á skjánum
- Smelltu á ‘Sjá kvittanir’. Þarna getur þú skoðað allar þínar kvittanir.