Verslanir Kjörbúðarinnar eru staðsettar á landsvísu. Við kappkostum að bjóða gott úrval, lágt verð og ferskar vörur á hverjum stað. Kjörbúðin gerir viðskiptavinum sínum kleift að versla daglega allar helstu nauðsynjavörur á samkeppnishæfu verði. Vikulega bjóðum við upp á girnileg og fjölbreytt tilboð og spannar úrvalið allt frá þurrvöru yfir fersk vöru.
Um Kjörbúðina
Samfélagsstefna Samkaupa
Samkaup leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð í allri starfseminni sem endurspeglar metnað fyrirtækisins til að vera traustur og virkur þátttakandi í samfélaginu. Samkaup virða væntingar lykilhagsmunaaðila til fyrirtækisins og móta áherslur í efnahagslegum, samfélagslegum og umhverfislegum þáttum með þær að leiðarljósi.
Samkaup vinna markvisst að því að bæta samfélagið hvort sem um er að ræða nærsamfélagið, landið allt eða á heimsvísu með skýrum siðareglum um hegðun fyrirtækisins og metnaðarfullum verkefnum. Til þess kappkostar Samkaup að fylgja tíu meginreglum Sameinuðu þjóðanna (UN) um samfélagsmál unnið að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Samfélagsverkefni okkar beinast aðallega að því sem tengist starfsemi fyrirtækisins beint og varðar einkum starfsfólk, viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila, vörur og þjónustu. Við styðjum jafnframt önnur verkefni sem stuðla að betra samfélagi án þess að þau tengist starfsminni.
Umhverfisstefna Samkaupa
Samkaup ætla að vera leiðandi í umhverfismálum á smásölumarkaði. Samkaup leggja áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af starfseminni og nýta auðlindir eins og kostur er. Umhverfisstefnan nær til allrar starfseminnar.
Við viljum að starfsmenn hugsi um um umhverfið í daglegum störfum og fylgi umhverfisstefnunni með án undantekninga. Lög og reglur í umhverfismálum eru uppfylltar á öllum starfsstöðvum.
Við kaup á vöru á þjónustu er tekið mið af umhverfisstefnunni og gerðar skýrar kröfur til birgja og undirverktaka um að þeir fylgi henni. Á það einnig við birgja þeirra og undirverktaka. Á grundvelli umhverfisstefnunnar er unnið að stöðugum umbótum til að bæta markvisst árangur.